Veiðihúsið

Svefnpláss:
Veiðihúsið er um 50 fm auk svefnlofts. Í húsinu eru 2 svefnherbergi, svefnloft, stofa og baðherbergi með sturtu. Í svefnherbergi eru tvö rúm í hvoru herbergi og verða rúmin uppbúin. Á svefnlofti eru 4 dýnur fyrir svefnpoka ef gestir eru fleiri en 4 og þurfa gestir því að gera ráðstafanir í þeim tilvikum.

Borðbúnaður:
Matar- og kaffistell fyrir 8 manns, skálar og föt, pottar og pönnur, eldavél, örbylgjuofn, kaffivél og vöfflujárn.

Utandyra:
Gasgrill er út af stofu og verður séð um að gas verði ávallt til staðar.

Munaður:
Í bústaðnum er sjónvarp og útvarp með geislaspilara.

Hvað þarf að hafa með sér ?
Ef tala gesta fer yfir 4 þarf að koma með svefnpoka eða sængur fyrir þá sem umfram eru.

Rusl:
Rusl má ekki skilja eftir í eða við veiðihúsið, ruslagámur er við Baulu og Varmaland.

Leiðbeiningar:
Í anddyri eru leiðbeiningar um húsið, áríðandi er að lesa þær, athugið að skrúfa aldrei fyrir hita í húsið, í lok dvalar hafið ofna stillta á miðlungshita. Ekki skrúfa fyrir vatnið þar nema ef bilun verður.

Munið að ganga vel um, skilatími veiðihúss er fyrir kl. 13.30 á skiptidögum.

Veiðimenn vinsamlegast rýmið veiðihús eigi síðar en kl. 13:30 á skiptidögum þegar veiði skal hætt kl 12:00.

Biðjum við veiðimenn að virða þessar reglur.


Myndir af veiðihúsinu. Smelltu á viðkomandi mynd til að stækka.

Svipmyndir af veiðihúsi  Svipmyndir af veiðihúsi  Svipmyndir af veiðihúsi  Svipmyndir af veiðihúsi
Borðstofa  Eldhús
Herbergi 1  Herbergi 2
Stofa  Stofa 2
Baðherbergi